Fórum 6. maí til Orlando ég, Guðrún Hattie
og mamma hennar, það voru aðein 26 farþegar í vélinni þannig
að það gátu allir fengið sína eigin sætaröð sem var geggjað
þægilegt
!! En auðvitað byrjaði Guðrún ferðina á
því að detta einhvern veginn á borðið mitt í flugvélinni og
fá þennan risa stóra marblett á lærið hehe
En það var sko
ekki mikið sofið á leiðinni enda orðnar frekar spenntar og
spiluðum eiginlega alla
leiðina...Svo þegar við
vorum komnar vorum við mjög þreyttar og svangar, en nei fórum
út um allt svæði að leita af mat en þá lokar allt kl. 22
en
loksins fundum við pizzu
staðSvo fyrsta
daginn sem ég vakna í Florida er ég komin með þvílíka sýkingu
í endajaxlinn
!! Sem betur fer var hjúkka með okkur og
gat reddað fyrir mig sýklalyfjum
... ég þarf alltaf að verða
veik þegar ég fer til
útlanda!!En það stoppar
mig ekkert...Það var mikil
afslöppun í Florida legið hjá sundlauginni í sólinni að reyna
að fá smá brúnku
hehe
Mikið spilað,
kastað bolta, fór aðeins í golf, reynt að fara í tennis og
körfubolta í hitanum sem var ekki alveg að
virka...Verslað pínu,
misstum okkur reyndar í fyrstu búðarferðinni í MATVÖRUBÚÐ

hahahaEignuðumst
nýjan vin sem við skírðum Snúður og er
eðla
Fundum ekki
hvar gönguljósið við hraðbrautinni hhmmmm
Fórum á smá
djamm svoldið erfitt þegar allt lokaði klukkan 22 á svæðinu
en fundum lítinn stað rétt fyrir utan svæðið
sem var reyndar bara opinn til 2 en við
vorum sko ekki lengi að eignast vini og fórum í eftir party
komum svo heim kl 6:30 verðum að hafa þetta eins og á Íslandi
híhí
Svo var farið
á Tónleika Diana Ross sem var alveg geggjað
gaman
Farið í
Universal, city walk, Down Town Disney og fullt fleira
5. maí var það New
York!!Fyrsta daginn
var sko labbað mikið vorum að deyja
í fótunum
eins og flest alla aðra daga!!!
Fórum til Brooklyn, Queens, sáum auðvitað
Frelsisstyttuna og tókum líka þessar glæsilegu myndir af
henni hahahahah svo var gert fullt
fleira...
Fyrsta kvöldið var okkur boðið á
Reggae tónleika svo sagði Guðrún... en þegar við komum á staðinn,
var þetta allt öðru vísi en ég bjóst við rauður dregill myndatöku
menn út um allt, allir í síðkjölum og jakkafötum
. Við 3 stóðum
bara í okkar buxum, ég átti ekki orð mér brá svo alveg eins og asni
til fara við hliðin á þessu fólki hehe þá var Þetta ekkert annað en
International Reggae and world music awards




!!!! En þetta var ekkert smá skemmtileg upplifun og verður með mér
alla æfi!! fullt af frægu
fólki!!!
Annað kvöldið var svo farið í reggae
party þar sem ég og Emelía vorum einu hvítu þar inni enda var mikið
horft á okkur... svo mæta þessir þvílíku gaurar inn með græna klúta
allir að taka myndir af þeim og við skiljum ekkert í þessu einhver
Shabba Ranks hver er nú það??? Buðu okkur með sér upp á Hotel en
við afþökkuðum og þeim fannst það geggjað skrítið
um nótina þegar
við komum upp á hótel horfðum við á mynd með Sadan Andler
hahahahaha, daginn eftir fórum við svo til
systur Viktors í mat sm á geggjað flott hús hittum alla
fjölskyldu hans, viktor er sá sem var búin að bjóða
okkur allt þetta og fengum þá að vita að Shabba hafði unnið Grammy
verðlaun hahahaha við erum lúðar!!! svo seinasta kvöldið var farið
á skemmti stað og djammað svoldið...
Keyrt okkur svo upp áflugvöll daginn eftir í
geggjað flottum bíl sem að frægur gaur á hehe ég er strax farin að
sakna allra úti !!!!
En þetta er orðið allt of
langt