bloggið mitt

Velkomin(n) á bloggið mitt

25.06.2007 10:07:56 / gydasol

TIL HAMINGJU!!

Það gerist nú voða lítið hjá mér þessa dagana... en ég fékk alveg æðislegar fréttir í gær:haha::haha::haha: Hildur og Siggi eignuðust lítinn prins í gær:haha::haha::haha: Ég vil óska ykkur innilega til hamingju og núna er ekkert annað en að bíða eftir að fá þau heim!!! ég er orðin ekkert smá spennt:haha::haha:

Til hamingju elsku dúllurnar mínar hlakka til að fá að hitta litla prinsinn;):haha:!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 10:04:21 / gydasol

Daginn!!

:haha:Ekkert jæja Guðrún mín hehe... ég veit ég er ekkert smá ódugleg að skrifa hérna:S Það sem er búið að gerast hjá mér hhmmmmm ekki mikið en...

Átti afmæli 3. júní varð alveg 23 ÁRA 8| vá hvað ég er að verða gömul hahahaha hvar er háskólinn sem ég ætlaði vera komin í og hvar er kallinn hehe á afmælinu kíkti ég til ömmu og afa um daginn.... svo í mat með pabba og fjölskyldunni um kvöldið bara mjög góður dagur TAKK FYRIR MIG :haha::haha:

2. júní var mjög skemmtilegur dagur sem ég eyddi með mömmu :haha::haha:

  • Við mamma skruppum á Laugarveginn klukkan 14
  • Skoðuðum í búðir eða ætluðum að gera það... endaði í einni búð
  • Vorum örugglega í 3 tíma að ákveða hvað við vildum borða kemur ykkur kannski ekkert á óvart þar sem ég er mjög ákveðin manneskja :$
  • Fórum inn á einn veitingarstað sem var allt of dýr þannig að fengum okkur einn bjór þar....
  • Fórum í kolaportið og keyptum okkur harðfisk nammi namm :haha:
  • Ætluðum á caffi victor en allt of mikil gömul reykingarlykt þar oojjjjjjj
  • Röltum á milli staða og fengum okkur bjór og kokteila
  • Borðuðum svo á thorvaldsen geggjað góður matur :haha:
  • Kvöldið kom Sólrún og Hjalti í heimsókn svo man ég ekki meir hehe8|

Já það er sko gaman að eyða deginum með henni mömmu:haha::haha: Takk æðislega fyrir mig!!!!! :haha:;)

Seinustu helgi bauð ég frændsyskinum mínum (Margréti, Söndru, Láru, Jóa og kærustu hans) í heimsókn geggjað gaman að hitta þau öll... svo var auðvitað haldið í bæinn... föstudeginum fór ég með henni móður minni til bróður hennar og fengum okkur í glas :haha: hahahaha hvað er málið ég er bara alltaf með mömmu minni 8|;):haha: það er bara gaman!!!!

Það er svo leiðinlegt að vera ekki á bíl!!!! Er voða mikið bara heima, það sem ég geri aðalega er sem sagt vinna, borða, taka til, sofa, liggja í lendi og djamma frábært líf er það ekki?? hahahaaha

En núna get ég ekki beðið eftir að allir komi heim til Íslands er farin að sakna allra geggjað mikið.... vantaði ykkur geggjað á afmælinu:S kannski ég bara ég haldi svona hálfgert afmæli þegar þið komið og vona þá að allir geta komið en það er bara svo erfitt að gera eitthvað þar sem að vinkonur mínar eru að vinna vaktarvinnu hehe en þetta reddast....

GGUUUUÐÐÐÐ hvað það er erfitt að vekja Þóri bróðir.... hann fékk að gista heima í nótt og í morgun ætlaði hann ekki að vakna við helv... símann sinn sem hringdi alveg örugglega í korter og þessi ógeðslega pirrandi hringing klukkan 7 í morgun!!!!! ég var að vekja hann í meira en hálftíma hahahahaha hann er ótrúlegur...

en allt of langt hjá mér ætla að reyna að vera duglegri við þetta núna svo það komi ekki svona löng og leiðinleg færsla aftur hahahahaha

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 09:44:22 / gydasol

Alveg að verða gömul!!!!

Jæja þá stittist í að maður verður 23 ára, bara 3 dagar í þetta hehe8| Svo er það spurninginn hvort maður eigi að halda upp á eitthvað afmæli?? það er bara svo erfitt að gera eitthvað þar sem að vinkonur mínar eru að vinna svo asnalega og svo vantar auðvitað einhverjar á landið!!:S

En það sem er búið að gerast hjá mér seinustu daga er bara voða lítið...  það er alltaf allt eins hjá mér!! En um helgina horfðum ég, Kristín og Unnur á ungfrú ísland og var systir unnar í 5 efstu sætunum :haha::haha: til hamingju með systir þína Unnur mín :haha: so fór ég bara heim í Gbr bara ein og hafði það bara rólegt ;) En rólegheitin voru nú fljót að breytast á laugardeginum 8| allt fylltist af börnum og hundum hehe Svo var ég með Hörð, Tómas litla bróður og Nikolai yfir nótt vá það tekur bara á að vera mamma :o en þetta gekk allt vel og var bara gaman :haha:

Við stelpurnar fórum á smá skrall á sunnudeginum enda frídagur á mánudegi...

Svo er ég búin að gera mest lítið annað en að hanga heim, litaði hárið á henni Söru í fyrradag, Kristín kíkti í smá heimsókn, kíkti á Kristínu á mánudaginum, og var í 3 tíma í gær að taka ´til heima enda var ekkert smá ógeðsleg íbúðin hehe en mér finnst samt eins og hún sé ekkert hrein!! svo í nótt skutlaði ég Dagný upp á flugvöll og fékk bílinn hennar lánaðann á meðan hún er úti:haha::haha: mér finnst ekkert smá gaman að hún hugsi alltaf til mín:haha:

En afmælishelgin mín framundan, 40 ára afmæli annað kvöld og sjá hann pabba spila í hljómsveit get ekki beðið ;) staffa djamm líka annað kvöld svo verður kannski bara afmælisparty á laugardaginn:D;)  og verð ellismellur á sunnudaginn hehe

Kveð Gyða unga 8)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 09:40:36 / gydasol

Góðann Daginn

Það er nú voða lítið að frétta hjá mér.... Við Guðrún erum sjúkar í Reggae stelpurnar eru öruggleg að fá ógeð af þessari tónlist en ekki ég og Guðrún :haha::haha:Loksins búin að láta laga þessar hlunka neglur sem ég fékk í Florida og Unnur fékk heiðurinn á því að laga þær, hún var sko ekki sátt endalaust lengi að pussa þær hehe TAKK Unnur mín love you:D:D:D

Ég er nú aðalega búin að vera að vinna og vinna frekar mikið... svo er ég búin að vera að kenna sumarstarfsfólkinu frekar skrítið að láta einhvern hlusta á mann á meðann maður er að svara í símann og ég að kenna8| ég er rétt svo búin að vinna hérna í ár og fullt af starfsfólki er búið að vinna hérna í 20 ár eða meira hehe!!!  ég er samt alveg að springa langar svo aftur út8|!!! Ég fæ bara ekki nó hehe ég á nú samt eftir eitthvað sumarfrí eftir þannig að það er aldrei að vita hvað maður geri:S enda er maður farin að sakna allra úti:cry:

Smá frá helginni:

Föstudagur:

  • Hörður litli bróðir orðinn 12 ára vá orðin ekkert smá stór TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN HÖRÐUR MINN:haha:
  • Við Guðrún fórum í innfluttningsparty þvílíkt gaman og góð tónlist
  • Sumir þóttust kunna spænsku... sem var kannski ekki alveg að virka hahah
  • send mörg skemmtileg sms Guðrún mín skilur veit ekki hvað maður kallar svona sms
  • farið í bæinn
  • Svo ætlaði ég að lána Guðrúnu símann minn með sér heim út af svolítlu sem að ég ætla bara ekkert að vera að tala um hér hahahaha hennar var batteríslaus
  • Ég og Guðrún misstum okkur í dansinum hahahaha hálfvitadans:haha:
  • Sumir voru að flýja undan okkur og datt við það hehe
  • Afríku búi hahahaha
  • Skemmtum okkur geggjað vel:haha::haha:

Laugardagur

  • Átti að skutla mömmu og Víði upp á flugvöll svaf yfir mig:S
  • Ætlaði að skila skónum sem að ég fékk lánaða í búð gleymdi því þannig að núna á ég þá hehe
  • Ég, Guðrún og Unnur Hauks fórum í Bláa Lónið
  • Borðuðum í Grindavík´
  • Kíktum heim til mín ég Guðrún, Unnur, Unnur og Auður... auðvitað bjór
  • Ég og Guðrún frekar þreyttar ekki skrítið :$
  • Fórum samt í bæinn
  • Sátum á Hverfis allann tímann
  • Ekki eins skemmtilegt og á föstudaginn

Sunnudaginn var svo afmæli hjá litla bróður mínum frekar þreytt eftir helgina!!!

En núna er mamma og Víðir úti og ég að sjá um hennar heimili gengur bara mjög vel:haha: og já má ekki gleyma hitti Dagný í seinustu viku í fyrsta skipti í 5 mánuði... en hitti hana mjög stutt  enda var hún á leið til London að hitta gæjann hehe og fékk ég að hafa bílinn hennar á meðan:haha::haha:

En næsta helgi verður löng og róleg helgi:haha::haha: og svo fer að styttast í að ég verði gömul hehe :cry: vá hvað ég er farin að bulla hef voða lítið að segja meir hérna

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:07:35 / gydasol

Florida og New York

Fórum 6. maí til Orlando ég, Guðrún Hattie og mamma hennar, það voru aðein 26 farþegar í vélinni þannig að það gátu allir fengið sína eigin sætaröð sem var geggjað þægilegt:haha::haha:!! En auðvitað byrjaði Guðrún ferðina á því að detta einhvern veginn á borðið mitt í flugvélinni og fá þennan risa stóra marblett á lærið hehe8|8| En það var sko ekki mikið sofið á leiðinni enda orðnar frekar spenntar og spiluðum eiginlega alla leiðina...Svo þegar við vorum komnar vorum við mjög þreyttar og svangar, en nei fórum út um allt svæði að leita af mat en þá lokar allt kl. 22 8|en loksins fundum við pizzu staðSvo fyrsta daginn sem ég vakna í Florida er ég komin með þvílíka sýkingu í endajaxlinn:evil:!! Sem betur fer var hjúkka með okkur og gat reddað fyrir mig sýklalyfjum:)... ég þarf alltaf að verða veik þegar ég fer til útlanda!!En það stoppar mig ekkert...Það var mikil afslöppun í Florida legið hjá sundlauginni í sólinni að reyna að fá smá brúnku hehe8)Mikið spilað, kastað bolta, fór aðeins í golf, reynt að fara í tennis og körfubolta í hitanum sem var ekki alveg að virka...Verslað pínu, misstum okkur reyndar í fyrstu búðarferðinni í MATVÖRUBÚÐ 8|:ShahahaEignuðumst nýjan vin sem við skírðum Snúður og er eðla:DFundum ekki hvar gönguljósið við hraðbrautinni hhmmmm :SFórum á smá djamm svoldið erfitt þegar allt lokaði klukkan 22 á svæðinu en fundum lítinn stað rétt fyrir utan svæðið  sem var reyndar bara opinn til 2 en við vorum sko ekki lengi að eignast vini og fórum í eftir party komum svo heim kl 6:30 verðum að hafa þetta eins og á Íslandi híhí:haha::haha:Svo var farið á Tónleika Diana Ross sem var alveg geggjað gaman:):) Farið í Universal, city walk, Down Town Disney og fullt fleira :)    5. maí var það New York!!Fyrsta daginn var sko labbað mikið vorum að deyja í fótunum:( eins og flest alla aðra daga!!!  Fórum til Brooklyn, Queens, sáum auðvitað Frelsisstyttuna og tókum líka þessar glæsilegu myndir af henni hahahahah svo var gert fullt fleira...  Fyrsta kvöldið var okkur boðið á Reggae tónleika svo sagði Guðrún... en þegar við komum á staðinn, var þetta allt öðru vísi en ég bjóst við rauður dregill myndatöku menn út um allt, allir í síðkjölum og jakkafötum8|. Við 3 stóðum bara í okkar buxum, ég átti ekki orð mér brá svo alveg eins og asni til fara við hliðin á þessu fólki hehe þá var Þetta ekkert annað en International Reggae and world music awards8|:):haha::S:haha::haha: !!!! En þetta var ekkert smá skemmtileg upplifun og verður með mér alla æfi!! fullt af frægu fólki!!!:haha::haha: Annað kvöldið var svo farið í reggae party þar sem ég og Emelía vorum einu hvítu þar inni enda var mikið horft á okkur... svo mæta þessir þvílíku gaurar inn með græna klúta allir að taka myndir af þeim og við skiljum ekkert í þessu einhver Shabba Ranks hver er nú það??? Buðu okkur með sér upp á Hotel en við afþökkuðum og þeim fannst það geggjað skrítið8| um nótina þegar við komum upp á hótel horfðum við á mynd með Sadan Andler hahahahaha, daginn eftir fórum við  svo  til systur Viktors í mat sm á geggjað flott hús hittum alla  fjölskyldu hans, viktor er sá sem var búin að bjóða okkur allt þetta og fengum þá að vita að Shabba hafði unnið Grammy verðlaun hahahaha við erum lúðar!!! svo seinasta kvöldið var farið á skemmti stað og djammað svoldið...

Keyrt okkur svo upp áflugvöll daginn eftir í geggjað flottum bíl sem að frægur gaur á hehe ég er strax farin að sakna allra úti !!!!

 

En þetta er orðið allt of langt

 

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:10:46 / gydasol

komin heim!!

Jæja þá er ég komin aftur til Íslands eftir langt ferðalag... ooo mig langaði sko engan veginn að koma strax heim :evil: væri sko alveg til í að geta ferðast lengur!!!!

Þetta var ekkert smá góð ferð og ég held ég sé orðin ástfangin af New York gæti alveg hugsað mér að búa þar!!!

En núna er ég bara komin í vinnuna og bara sama venjulega líf byrjað aftur... missti meðlegjanda minn fékk að vita það á meðan ég var úti:( þvílíkt vesen að vera í þessari íbuð!!! ég er að verða brjáluð á þessu... en ég vona bara að þetta reddist allt saman

En nenni ekki að skrifa ferðasöguna núna því það tekur of langann tíma... en ég kem með hana í vikunni og reyni að setja inn einhverjar myndir;)

Kveðja

Gyða Sól;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 11:08:09 / gydasol

Pakka pakka!!

Maður er varla kominn til Íslands þá er maður farinn út aftur Eins og afi sagði við ömmu hún rétt svo kemur heim til að pissa og þá er hún farin strax aftur hahaha8|:D Ég er sem sagt að fara til Florida á sunnudaginn með Guðrúnu Hattie og mömmu hennar:haha:8):haha: og ég er að fara í fyrsta skipti til Bandaríkjanna, ég er alveg orðin pínu spennt en er samt ekki alveg að átta mig á því að ég sé að fara því ég er svo ný komin heim frá Danmörku:S En við Guðrún erum að fara að borga miðann á eftir og þá fáum við hann líka í hendurnar þá kemur spenningurinn pott þétt ;):haha: ´

Í gær var ég fyrst að taka almennilega upp úr töskunni´hehe og að fara að pakka ofan í hana strax aftur er voða skrítið... en það er bara gaman verðum í Florida til 5. mai og förum þá til New York til 9. mai þannig að þetta verður þvílíkt gaman :haha::haha:

En þá er komið nó í bili

Gyða Sól 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:09:03 / gydasol

Jæja komin heim!!!

Núna er ég komin frá Danmörku og það var ekkert smá gaman!!!

 

Fór samferða Sigrúnu og Ómari upp á flugvöll, byrjuðum á því að standa í vitlausri röð þegar við vorum að fara að innrita okkur í smá tíma8| hehe

Þegar við komum í fríhöfnina var Ómar mjög ósáttur við hvað það væri ljót breyting á henni sem ég er  alveg sammála honum með!!! svo var ekki sætin í flugvélinni nóu góð fyrir hann hehe og þegar við vorum komin til Danmörku fannst honum allt of kalt hahahaha en hann kvartaði ekki yfir bjórnum honum fannst hann sko góður sem er líka alveg rétt;)!!!

Svo var það bara lestin til Odense Sigrún og ómar komu með mér þangað en Sólrún, Hjalti og Nikolai fóru til Aabenraa

Þegar við vorum komin í lestina hélt Sigrún að við værum í vitlausri lest8|... en sem betur fer var það ekki við keyptum miða í sæti  en það gleymdist að merkja það inná miðann okkar hehe

 

Svo þegar við vorum komin til Odense kom Guðrún og Rakel á móti okkur með Danska fánann vá það var ekkert smá gaman að hitta þær:haha::haha::haha::haha:!!

Svo var bara farið beint á djammið auðvitað;):haha:

Laugardeginum kom svo Amanda ekkert smá gaman að hitta hana líka :haha:

Gleymi nú ekki ferðinni í búðina á laugardeginum með stelpunum og ég á sko ekki eftir að gleyma henni strax hahahahah8|:S:)

Umræðuefnið var líka mjög skemmtilegt hjá stelpunum hahahaha

Svo var auðvitað farið aftur á djammið þótt að það hafi verið pínu erfitt að byrja að drekka aftur og enginn vildi vera fyrst í sturtu hehe

Svo fórum við alveg óvart í eitthvað Asíu party8| og við vorum bara hávaxnar þarna inni !!! En það var mikið stuð hjá stelpunum og hefði sko alveg viljað að vera lengur

 

Mánudeginum fór ég svo til Köpen til Hildar og Sigga, Guðrún og Amanda komu með mér upp á lestarstöð að kvaðja mig og fékk ég vitlausann miða í lestina8|!!! þurfti að fara með lestagaurnum í klefann hans og sagði hann mér að ég ætti að fá 600 danskar í sekt!!!! en ég slapp við það þannig að ég fékk að borga 135... svo ætlaði ég að hringja í Hildi og láta hana vita að ég væri lögð af stað, en nei þá gat ég ekki hringt úr símanum mínum!!!!!!! fékk þá að hringja hjá lestargaurnum eftir það urðum við bara ágætis vinir og stóða hann hjá mér alla leiðina að spjalla við mig hehe:S

Svo kom Hildur og tók á móti mér ásamt bumbubúanum vá hvað hún er myndarleg svona ólétt:haha::haha:

Fórum að skoða Kristaniu, fórum í bátsferð, versluðum, sóluðum okkur8), löbbuðum strikið, borðuðum yfir okkur á Hard rock hehe, spilað og mikið hlegið, horft á tippaþætti  hehe og fótbolta sem ég geri aldrei hahahaha ég og Hildur kunnum ekki að vera með tyggjó hahahaha labbað upp í einn turn og skoðað yfir kaupmannahöfn, ótrúlega mikið sem siggi gat sagt manni frá... ég var sko ekki til í að fara heim enda orðið geggjað gott veður þegar ég var að fara :(:cry:

Ég er strax farin að sakna ykkar í Danmörku!!!! Svo gleymdi ég að taka myndavélina með mér þannig að Amanda er með einhverjar myndir og Hildur held ég líka

Nenni ekki að skrifa meir....

Gyða Sól

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 11:30:41 / gydasol

2 dagar í Danmörk!!!!!!! :):)

Vá hvað tíminn er fljótur að líða, ég trúi ekki að það séu bara 2 dagar í Danmörk... ég er orðin ekkert smá spennt að fara út og hitta vini mínar :haha: þetta er seinasti vinnudagrinn og svo er það bara frí í rúma viku:D:D:D

Á laugardaginn fór ég á árshátíð Glitnis sem ég ætlaði sko engan vegin að fara á en var svo pínd til að fara8| Ég sé sko ekki eftir því að hafa farið.... skemmtilegt að sjá allt eldra fólkið í glasi og var það sko komið í glas fyrir mat hehe enda byrjaði skemmtunin í fyrirparty kl 17 á Grand Hótel og svo var farið þaðan í laugardalshöllina... ég fór nú bara snemma heim enda skírn daginn eftir;)

Núna er búið að skíra litla prins bróður míns og Söru hann Rökkva Snæ :D:D og er ég orðin guðmóðir;):D:D Rökkvi Snær var yndislegur í skírtninni og heyrðist ekki í honum brosti bara til prestsins:D

Jæja það er víst eitthvað djamm í kvöld hef ég heyrt og það er spurning hvort maður geri eitthvað er samt eiginlega ekki að nenna því er alveg búin að fá ógeð af þessu djammi og er ekki búin að fara á almennilegt djamm í langann tíma:S verð líka að spara mig fyrir Danmörk hehe ;) en ég held að þetta endi með djammi þar sem allir eru að fara að gera eitthvað!!!

En þetta er seinasta bloggið mitt í smá tíma því ég er á leið til Danmörku ;) sjáumst eftir nokkra daga danirbnir mínar ég get varla beðið eftir að koma og hitta ykkur enda farin að sakna ykkar þvílíkt mikið !!!!

Ég vil óska Hildi G til hamingju með afmælið :haha::haha:;):haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 00:38:33 / gydasol

Laugardagur

Ég er hérna heima hjá pabba að passa litla bróður minn og hef það bara fínt Þórir var að fara þannig að ég er bara ein :S Í dag bókaði ég far til DANMÖRKU þannig að ég er að fara 6. apríl til 13. apríl til DANMÖRKU að heimsækja yndislegu vini mína :haha::haha: Sólrún, Sigrún og Ómar fara sama dag og ég :haha::haha: Ég er orðin ekkert smá spennt 8|enda farin að sakna þeirra óendanlega mikið og  verð auðvitað að sjá bumbuna hennar Hildar það er ekki nó að sjá hana á myndum og djamma með Guðrúnu og Rakel sjá hvernig þetta er í Danmörkunni;)...

En í gærkvöldi fór ég og Kristjana á Caruso fengum geggjað góðann mat... kíktum svo aðeins á Hressó fengum okkur einn bjór, hlustuðum á trúbadór og spjölluðum helling enda ekki búnar að hittast lengi!! Þetta var alveg frábært kvöld... eftir það kíkti ég á Guðrúnu og sofnaði eins og steinn í æðislega nýja sofanum hennar :D

Þannig að þetta er bara róleg helgi hjá mér verð að spara mig fyrir Danmörk;)

framundan: Ferming á morgun, læknir á mánudag út af helv.. blóðþrýstingi hehe, jarðaför á þriðjudag:( árshátíð á laugardag ætla bara að stoppa stutt því bróðir minn er að fara að skíra daginn eftir :haha::haha:

En ég er loksins búin að redda meðlegjanda :haha::haha: alveg frábær stelpa sem er að koma að flytja inn til mín:haha: getur ekki verið betra!!!

En þetta er nó í bili...


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 10:40:45 / gydasol

Sæl

Þar sem það eru svo margir sem skoða þetta blog hehe ætla ég að koma með hérna eina stutta færslu...

Seinasta vika var frábær eyddi miklum tíma með mömmu :D þar sem að Víðir og Gummi voru í Danmörku.... það er svo gott að geta verið bara með mömmu sinni... við kíktum aðeins út saman á laugardagskvöldið út við mæðgurnar og var bara mjög gaman fyrri part kvölds eyddu við tíma með krökkunum í hengimann hehe það var ekkert smá gaman  hehe :o

En á mánudaginn hittumst við frænkurna ég, Lára og Margrét heima hjá mér pöntuðum pizzu og horfðum á myndbönd af okkur frá því að við vorum litlar :haha::haha: það er svo fyndið að sjá hvernig maður var  þegar maður var lítill ég var gjörsamlega skugginn á Láru gerði allt eins og hún hahaha

Já má ekki gleyma Arndís vinkona eignaðist lítinn prins 15. mars og vil ég óska þeim innilega til hamingju ;):lol::haha:

Í nótt lést svo Hinni frændi minn úr sveitinni enda orðin gamall kvíli hann í friði...


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 14:21:31 / gydasol

ekkert sérstakt...

Jæja tími kannski á smá blogg það gerist nú ekkert hjá mér eins og vanalega:S enþá að vesenast út af meðleigjanda er ekki að meika að borga svona mikið á mánuði!!! Ég veit ekkert hvað ég á að gera í þessu íbúðar drasli ég er orðin frekar þreytt á þessu, var búin að redda leigjanda en það fór nú allt í rugl!!!!! Ég er geggjað pirruð á þessu öllu saman... svo er ég enþá að hugsa um háskólann á enþá eftir að sækja um, en ég geri það fljótlega það er alveg pott þétt ;)

Vikurnar eru alltaf eins hjá mér... enþá alltaf að kenna stæ, það er það eina kannski sem ég geri...

En seinasta helgi var bara mjög góð var með mömmu allann laugardaginn fórum í búð og buðum nokkrum kellum í mat um kvöldið:D Sólrún, Anna Guðrún, Sigrún, Gulla, Pettý og amma mæti auðvitað líka :D:D:D en Víðir og Gummi bróðir er í Danmörku þess vegna héldum við stelpu party... ég og Sólrún kíktum svo á árshátíð hjá háskólanum Líffræðideild eða eitthvað8| veit ekki afhverju því við stopuðum ekki lengi og fórum í bæinn...

Ég og Unnur kíktum í bíó á sunnudaginn á music and lyrics hehe mér fannst hún bara nokku góð ekta stelpu mynd en stelpur þið verðið að sjá hana því dansinn sem við ætlum að dansa næstu djömm eru í henni... Unnur þú skilur :haha::haha:

Jæja nó í bili...

bara snilld hahaha :haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 10:59:59 / gydasol

Daginn, daginn, daginn!!!

ooo það er svo leiðinlegt að blogga það gerist bara ekkert merkilegt hjá mér...:evil: en tíminn er ekkert smá fljótur að líða strax komin ný vinnuvika!!!

Helgin var bara þokkaleg.... ég, Unnur og Sara kíktum til Keflavíkur föstudagskvöldið fékk mér fleiri bjóra en ég ætlaði mér hehe :$ en ég veit ekki hvað málið er með mig og Keflavík fer einhvern veginn alltaf í vont skap þegar ég fer þangað ég var nú ekki sú allra skemmtilegasta var orðin geggjað óþolinmóð og vildi bara fara í bæinn...

Laugardeginum var ég ekkert þunn fór með Kristínu og Unni í smáralindina og sækja draslið mitt í bílinn til Söru... svo var það djamm um kvöldið og líka alveg þetta þvílíka djamm hehe við Unnur drukkum en fundum varla á okkur fórum í bæinn með Söru... byrjuðum auðvitað á Bellys (Fjólublátt Tópas bara fyrir þig Guðrún)  hehe svo var það Hressó ég entist nú ekki lengi í bænum og fór því bara snemma heim.... stelpurnar komu svo heim til mín um nóttina í mis góðu ástandi hehe þið skiljið mig stelpur ;)

Sunnudaginn var ég og Unnur heima hjá mér pikk fastar, geggjað svangar og latar... það var ekki fyrr en um 18 sem að við komum okkur út og bjargaði Þórir bróðir okkur alveg og skutlaði Unni heim sam var frekar þreytt hehe... svo fórum við Þórir til pabba og borðuðum með þeim...

Svona eru allir dagar hjá mér gerist ekki mikið merkilegra en þetta :$

Ætla að hætta þessu rugli

Gyða Sól

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 13:24:56 / gydasol

Sæl

Hérna kemur smá færsla fyrir þig Guðrún mín og ég lofa að vera duglegri hérna ;) núna er liðin vika síðan þú fórst og ég er strax farin að sakna þín :cry: get ekki beðið eftir að panta mér ferð og koma að heimsækja ykkur!!!

Seinasta helgi var bara fín fór á staffadjamm á föstudagskvöldinu á Kringlukránni mjög góður matur og skemmti mér bara vel, Laugardagskvöldið var frekar spes, fór í bæinn með Söru, Unni og Gumma... kom frekar snemma heim og endaði kvöldið með frekar miklum látum8| en það reddaðist allt fyrir rest...

En það er nú svo sem ekkert merkilegt að gerast í mínu lífi (alltaf þvílík drama í kringum mann hehe) nema að núna er ég bara að pæla í að fara að sækja um í háskolanum 8| ég er svona eiginlega búin að ákveða hvað það verður og Fjármálaverkfræði er svona efst í huga núna... en samt langar mér að fara í HÍ veit ekki núna hvaða skóla ég vil... en þetta kemur allt í ljós bráðum

Var geggjað dugleg í gær og tók íbúðina í gegn tók mig alveg 2 tíma en núna er sko hreint og fínt :haha: en fór með Kristínu til Unnar í gærkvöldi og plönuðum að það yrði smá djamm á laugardaginn ;)

Kveð Gyða Sól8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 15:48:31 / gydasol

Kveðja Guðrúnu :(

Er mín ekki bara farin að hugsa um Háskólann meir og meir með hverjum deginum hehe en samt er ég ekki alveg nóu klár á því hvað ég ætla að læra... en þetta kemur allt saman ætla að fara í vikunni að kanna þetta betur... gengur ekki að vera allann daginn að hugsa um þetta og gera ekkert í því hehe 

Þá er komið að kveðja hana Guðrúnu K :cry: þar sem hún er að flytja til Danmerkur í fyrramálið í ár í snyrtifræðinám... ekki leiðinlegt að fá snyrtifræðing í vinarhópinn ;) En vá það verður samt erfitt að kveðja hana8|!!!! Það er búið að vera mjög skemmtilegur tími sem að við erum búnar að eyða saman og mikið hleyjið hehe tala nú ekki um tappatogaravesenið okkar hahahaha:haha: en við náðum ekki að klára Dawson búið að vera brjálað að gera hjá manni :(  en eitt ár flýgur áfram þannig að hún verður komin heim áður en maður veit af. 

Svo var kveðjuparty hjá Guðrúnu og Rakel síðasta laugardag á Solon og já auðvitað afmælið hennar Guðrúnar líka... þetta var ekkert smá skemmtilegt party og er ég alveg viss um að allir hafi skemmt sér konunglega :haha: Takk fyrir mig stúlkur :haha:

Ég vil bara að óska ykkur góðs gengis í náminu úti, ég á eftir að sakna þín Guðrún alveg óendanlega mikið en ég kem og heimsæki þig eins fljótt og ég get!!!! þú ert frábærasta og besta vinkona ;) love you

Varð að stela einni mynd ;)

Picture 035

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6